Lýtalækningar Sigurðar E.
Velkomin á heimasíðu Sigurðar E. Þorvaldssonar.

Markmið heimasíðunnar er að fræða um lýtalækningar og fegrunaraðgerðir, framkvæmd aðgerða og hugsanlegar áhættur.Margar ástæður geta verið fyrir því að leita lýtalæknis.  Lýti geta verið bæði stór og smá.  Afleiðingar slysa eða  aðgerða við sjúkdómum eru algeng verkefni  lýtalækna.  Forvarnar og/ eða greiningarstarf  getur falist í því að fjarlægja bletti eða sár sem gætu verið illkynja.  Fegrunaraðgerðir geta verið vegna smávægilegra útlitsatriða  sem valda  óþægindum  eða aflaga útlit svo áberandi sé. Slíkt er alltaf einstaklingsmat.  Ótímabær öldrunareinkenni eða áberandi frávik líkamsþroska  hvað- varðar útlit eða stærð eru oft ástæður fyrir því að leitað er til lýtalæknis.
Lýti, stór eða smá , geta verið þess eðlis að full ástæða sé til að leita álits lýtalæknis.  Læknir og  einsataklingur ræða og leggja sameiginlega raunhæft og faglegt mat á eðli lýtisins og  þýðingu þess fyrir viðkomandi einstakling og í þeim tilfellum þar sem slíkt mat leiðir til aðgerða  hefur það oftast í för með sér bætta líðan einstaklingsins.

Næstu skref
Ef þú telur að aðgerð geti hjálpað þér þá er næsta skrefið að panta tíma hjá lýtalækni. Oft er auðvelt fyrir lækni og einstakling að komast að niðurstöðu en þegar um fegrunaraðgerðir er að ræða getur matið verið mjög persónulegt og ber að taka tillit til þess.

Ábyrgð læknisins
Á Íslandi starfa læknar samkvæmt læknalögum.
Landlæknisembættið. Læknafélag Ísland


Siguršur E.


Aðgerðir

Copyright © 2007 HB. All rights reserved.
Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um áræðanleika, ef um rangfærslu er að ræða þá endilega sendu póst á Lýtalækningar.is